h1

Útsofinn og endurnærður

október 2, 2006

Ég gat í fyrsta sinn sofið almenninlega út í dag.  Það hefur bara held ég aldrei gerst í allt sumar og þreytan var farin að segja til sín.  Þegar ég hafði rifið mig á fætur í morgun, drukkið kaffibolla og skolað af mér svitann þá dreif ég mig út í búð að versla.  Enda ekkert til í ískápnum eftir langa fjarveru.  Í dag var ég annars bara að slaka á og liggja í leti.  Safna orku fyrir komandi mánuði í skólanum.  Vil vera orðinn alveg frískur áður en ég byrja að gera eitthvað af viti.  Fór svo á skrifstofuna í Konservatorium Wien og fékk gögn sem ég þurfti um innskráningu og skólagjöld.  Spjallaði bæði við Direktorinn og Sekreterin og leist vel á andrúmsloftið í skólanum.  Ég þarf ekkert að syngja fyrir til að komast í skólann, Rannveig garantieraði að ég væri nógu góður til að vera þarna.  En þar sem ég er að breyta náminu aðeins og taka annað hvort píanónámið sem aðalfag líka eða tónlistarstjórnandann, þá þarf ég að spila fyrir Direktorinn á morgunn.  Vona að ég eigu nú eftir að koma þessu verki almenninlega frá mér.  Væri nefnilega alveg til í að hafa pianó sem annað aðalfag.  Þá hefur það jafnmikið vægi og söngurinn. Í kvöld kokkaði ég svo bara Chili con Carne.  Eldaði náttúrulega alltof mikið eins og venjulega.  Hefði líkast til getað boðið 5 í mat.  En það er svo sem alltaf gott að eiga afganga líka. Hef bara verið nokkuð rólegur í dag þótt ég sé dáldið stressandi yfir mömmu.  Greyið er átti að fara í uppskurð í dag og ég hef ekki heyrt neitt.  En það verður örugglega í lagi, við hörkum alltaf allt af okkur.  En mamma láttu þér bara batna! “Sá, sem trúir á hamingjuna, er hamingjusamur”

Fr. Hebbel

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.