h1

Vikan sem er að líða

október 12, 2006

Nú er ég kominn á fullt í náminu.  Viðveran í skólanum er nú kannski ekkert rosalega mikil.  Enda kláraði ég nánast allt bóklegt í náminu í fyrra.  Þannig að ég er bara að klára restina af bóklegum fögum og æfa mig á daginn.  Hef bara verið ansi hreint duglegur við þetta.  En já um síðustu helgi þá var Bjórkvöld Íslendinga haldið eins og venjulega.  Það var nú löngu fyrir séð að maður yrði ekki þurr þetta kvöldið.  Enda þvílík stemming yfirleitt á þessum kvöldum.  Sem sagt já ég djammaði ágætlega þá.  En á Laugardaginn var mér hinsvegar boðið í afmælisveislu til Steina.  Þar vantaði ekki upp á veigarnar og svolgarði ég í mig “nokkrum” glösum af rauðvíni með súkkúlaði.  Það er himneskt skal ég segja ykkur.  Svo enduðum við Steini, Lidia, ?, Roman og Stefan niðri í bæ þar sem fjörið hélt áfram á Schwedenplatz þangað til mér fannst nóg komið og rölti heim á leið.  Vikan hefur annars liðið ansi hratt og svo sem ekkert merkilegt gerst í henni nema hvað ég hitti Möggu á kaffihúsi í gær, en hún er að æfa hérna með Piccolino óperunni.  Við sátum heillengi og ræddum um heima og geyma.  En í kvöld fór ég svo á einn bar þar sem var tískusýning og jazz.  En margir vinir mínir frá því í Franz Schubert Kons. voru þarna saman komnir og ég þekkti flest alla sem voru að spila.  Frábært að hitta þau aftur og ég lofaði að hafa meira samband en ég hef gert hingað til!  Svo líður að því að ég fái húskarlinn minn.  Hlakka auðvitað mikið til þess að hafa einhvern annan á heimilinu.  Sé fram á að ég þrufi ekki bæði að elda og vaska upp núna!

3 ummæli

  1. hehe aumingja drengurinn….!


  2. Hæ honey!
    Og hvernig fannst þér svo rauðvín&súkkulaði saman?? Sagði ég ekki satt?

    Frábært að þú skulir vera með bloggsíðu, því þá get ég kíkt hér inn þegar ég á að vera að læra;)


  3. Það er greinilega búið að vera nóg um að vera hjá þér að undanförnu og spennandi tímar framundan!
    Vildi bara vera komin til þín. Það er svo æðislegt í Vínarborg.
    Hafðu það gott Gísli minn!
    Knús og kossar frá múttu þinni.



Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.