
Nýtt útlit
október 22, 2006Jæja þá hef ég tekið mig til og breytt síðunni örlítið er meira að segja kominn með myndasíðu líka!
Annars er ekkert mikið af mér að frétta er bara allt við það sama. Hef bara nóg að læra og hef lítið gert annað af mér en það. Á föstudaginn kom þó Jón til mín og ég eldaði steik handa okkur. Það var alveg stórskemmtilegt. Enda finnst mér fátt annað skemmtilegra en að gefa fólki að borða. Held það sé komið frá mömmu. Biggi leit svo við og dró mig í eitthvað partý sem var þrælskemmtilegt. Alltaf gaman að kynnast nýju fólki.
Jæja ég hef ekkert meira að segja núna. Ætla að halda áfram að liggja í leti í dag!
Ciao!
Sko gilla…kominn með nýtt lúkk.
En þarft að laga linkinn í albúmið en annars skemmtilegar myndir