h1

Dagurinn og skoðanir mínar á hvalveiðum

október 23, 2006

Dagurinn í dag er búinn að vera ágætis törn.  Vaknaði samt ekki klukkan 9 eins og ég ætlaði þar sem ég asnaðist til að vera andvaka í gærkvöldi.  En svona er það nú stundum, maður nær sér bara ekki alltaf niður.  Hvað með það ég fó þó á fætur um 11 leytið og var svona skítsæmilega sofinn.  Druslaðist í Chorpartitur (kórstjórnunartíma) og var nú ekkert alveg að meika það.  Náði ekki að einbeita mér almenninlega að öllu sem ég vildi og þó að kennarinn hrósaði mér fyrir góða tilfinningu þá náði ég því ekki fram sem ég ætlaði.  Kannski ætlaði ég mér of mikið.  Svo fór ég bara í hvern tímann á fætur öðrum og var ekki búinn fyrr en í kvöld.  Langur dagur sem sagt í skólanum í dag.

En svo gerðust þau undur og stórmerki að ég var stoppaður tvisvar í dag í neðanjarðarlestinni.  Miðaathugun!  Sem betur fer hef ég lært af þeim 3 rándýru skiptum sem ég hef verið stoppaður að gleyma ALDREI miðanum aftur heima.  Ég hélt kátur för minni áfram en sá nokkra óheppna baðandi höndum og reyna að leika að þeir hafi gleymt miðanum heim.  Trúið mér það virkar bara ekki.  Nema einu sinni hjá mér, enda afbragðsleikari.  Felldi meir að segja tár og allt.

Leit aðeins við hjá Jóni í kvöld og fékk ýmsar fréttir hjá honum.  Ein er sú að hann fékk tilboð um að fara í söngtúr í mánuð um Evrópu.  Sem er frábært!  Hann á það svo sannarlega skilið!  Hvort sem hann tekur það að sér eða ekki.  En eitt er víst að ég mun sakna hans í mánuð ef hann fer.  Svo var hin fréttin að eldri söngvari er að segja skilið við spúsu sína og ná sér í eina yngri.  Greinilegt að ég er ekki eini sem er með gráan fiðring í söngheiminum.   En eftir að hafa spjallað um stund þá skelltum við okkur á frábæran stað, Ronan held ég að hann heiti, og fengum okkur Falafel og Lawasch plús arabískt brauð.  Mjög kósý staður og ÓDÝR.

Á morgun bíður mín svo áfram haldandi vinna.  Söngtími og fjör.  En eins og ein vinkona mín sagði mér í dag.  Þá á þetta að vera erfitt, en skemmtilegt, og það er það.

Annars hef ég verið að spá í að fara í líkamsrækt en veit bara ekki hvert.  Held ég verði bara að hamast eitthvað líka til að líða vel.  Maður verður bara allur svo mikið hressari ef maður púlar smá.  Ætla samt að bíða með það þangað til Alex kemur svo við getum peppað hvorn annan upp og æft saman.  Hundleiðinlegt að æfa einn!

Langreyður skorin

Svo smá um hvalveiðar sem hafa verið örlítið í fréttum hér og í Þýskalandi, eins og flestum öðrum löndum.  Hef enga sérstaka pólitíska skoðun á þessu þannig séð.  Finnst allt í lagi að veiða hvali og það er örugglega búið að rannsaka hvort þessar veiðar séu ekki í lagi.  En samt sem áður er það lítill hagnaður af þeim að það borgi sig að setja sig upp á móti flestum þjóðum heims.  Þá er ég ekki bara að tala um alla þessa umhverfisráðherra og Greenpeace sem eru á móti þessu. Skítsama um þá.  En maður verður sterklega var við það að fólk almennt þekkir ekki til rannsókna Íslendinga.  Þetta fólk er bara fáfrótt en engu að síður mikilvægt fyrir íslenskan túrisma.  Finnst persónulega að það hefði átt að fara aðeins rólegra í þetta og kynna betur hugmyndir Íslendinga fyrir heiminum áður en það er rokið af stað að veiða.  Því þetta lítur bara illa út fyrir Íslendinga að virða ekki skoðanir og tilfinningar fólks víða um heim gagnvart Íslandi.  Hana nú!

Ciao!

One comment

  1. Jafnar þetta lið sig ekki bara á hvalveiðum okkar íslendinga? Það varð nú uppi fótur og fit þegar “við” hófum rannsóknarveiðarnar á sínum tíma.
    Ferðamenn hópuðust nú samt til landsins.
    Er hvalurinn merkilegri en önnur sjávardýr? Ja, þegar stórt er spurt verður lítið um svör.
    En allavega flott lúkk á síðunni þinni



Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.