h1

Gervihnattamóttakarinn

október 28, 2006

Vá hvað ég er búinn að bíða lengi eftir þessum blessuðum gervihnattamóttakara! Loksins er hann kominn og ég hundfúll og pirraður yfir þessu. Haldið þið að ég hafi ekki valið vitlausan móttakara! Hnötturinn sjálfur er stilltur inn á svæðið sem ég var að leita eftir það er sem sagt UK eða með öðrum orðum Sky Digital. En nei ég er með yfir 400 stöðvar af rusli. Helmingurinn eru þýskar sjónvarpsmarkaðsstöðvar og restin, arabískar, franskar, spænskar og ítalskar. Örfáar enskar! Ég sem er búinn að vera svo spenntur að geta horft á enskt sjónvarp. En þessu verður reddað í næstu viku líklega. Verð bara að sætta mig við þetta í bili.

Annars fór ég í dirigent tíma í dag og gekk bara vel. Kennarinn heldur að ég geti orðið efnilegur kórstjórnandi og núna þarf ég bara að útsetja 3 lög fyrir kór. Það verður smá hausverkur en það hefst vonandi fyrir jól. Þetta er nefninlega prófverkefni. Langar jafnvel að reyna að semja eitthvað alveg nýtt við ljóð sem ég samdi. Spurning samt hvort sé hægt að kenna þessu liði að syngja á íslensku.

Dagurinn í dag var annars afslappaður. Ég hengslaðist bara heima og nennti ekki einu sinni að elda af viti. Keypti mér frosna pizzu. En það er nú líka í lagi stundum. Svo eru bara allir að djamma í kvöld en ég ætla að halda mig heima við og haga mér. Svo hins vegar ætla ég mér að skemmta mér næsta föstudag á Bjórkvöldi Íslendinga. Það er bara ekki hægt að vera þægur þá.

En jæja ætla að halda áfram að glápa á sjónvarpið. Bis später!

Ciao!

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.