
Nokkrir punktar
nóvember 8, 2006Sitthvað frá síðustu viku:
*Fórum á Íslendingakvöldið og skemmtum okkur mjög vel. Enduðum á karokíbar þar sem lagið var tekið!
*Alex búinn að vera duglegur að versla sér föt en ég haldið aftur að mér, ennþá!
*Búnir að horfa á alla 4. seríu af 24 (var aldrei búinn að sjá hana) og margar myndir
*Borðum alltof mikið. Með þessu áframhaldi og hreyfingarleysi verðum við feitir fyrir jól.
*Alex varð veikur og lá fyrir.
*Erum búnir að elda mikið af asískum mat. Kjúklingur mjög vinsæll!
*Alex búinn að fá plás í þýskuskóla og byrjar í næstu viku.
*Ég er búinn að vera of latur að æfa mig. Er að taka mig á!
*Er búinn að vera leiður yfir því að Binni dó í síðustu viku. En samt ekki búinn að fatta það. Langar í jarðaförina!
Jæja elskurnar meira hef ég ekki að segja í bili.
Ciao!
ohh ég er líka leið yfir Binna:( En ég er farin að sakna þín!