
Bratislava
nóvember 24, 2006Alex, Biggi og ég skelltum okkur í smá ferðalag um síðustu helgi til nágrannaborgar Vínar, Bratislava. Þó Bratislava sé svona nálægt þá er þetta eins og að koma inn í annan heim. Við ákváðum að taka þann kostinn að fara með bát þangað og svo rútu til baka. Í bátnum þá fannst okkur tilvalið að skella í okkur einn bjór og ég var hissa hvað hann var eitthvað rammur. Leit þá á prósentuna og viti menn hún var 12. Við komumst að því síðar að það er hvergi hægt að fá undir 10% bjór í Bratislava og flestir drukku líka litla bjóra. En ekki við. Við vorum svo vanir að drekka stóra bjóra að það var erfitt að venja sig af því þótt bjórinn væri 12%. Þegar við komum til Bratislava þá hófum við leit að einhverju ódýru gistiheimili. Fundum eitt í skemmtilega niðurnýddu porti. Alexi leist nú ekkert á þetta og heimtaði að við færum á hótel. En við mótmæltum og höfðum betur. Hostel Patio skildi það vera. Enda var planið ekki að hanga inn á Hosteli allan tíman. Í stuttu máli þá var þessi ferð alger snilld. Mikið djammað og ýmislegt gert sem við munum bara eiga fyrir okkur. Get samt sagt ykkur það að við drukkum slatta af kokteilum, borðuðum steikur, hittum frænkur Bob Marley, fórum VIP á risadiskótek og……… Við vorum svo reknir á fætur eldsnemma um morguninn og gefinn hálftími til að drulla okkur út. Það hafðist. Við vorum þunnir þegar við röltum um stræti Bratislava og sumur kúguðust meira en aðrir og urðu að hlaupa inn á klóset. Svo nenntum við ekki að bíða eftir rútunni og tókum ógeðslegustu lest sem ég hef á ævinni farið í !!! Þvílík skítafýla! En við komums þó heilir á höldnu og var ekkert rænt eða pyntaðir eða neitt svoleiðis. Ehh jú reyndar var símanum rænt af Bigga en það er önnur saga


Annars er vikan búin að vera viðburðarlítil. Báðir í skólanum og höfum eiginlega ekkert gert. Í gær minnti Alex mig á að það væri nú kominn tími á að gera eitthvað saman annað en að liggja upp í sófa og horfa á video. Við fórum því í göngutúr um Schönbrunn Hallargarðinn og svo fórum við heim en ákváðum þá að skella okkur í bíó á Casino Royal. Fannst hún bara ekkert spes! Alls ekkert Bondleg
En það var samt gaman að fara í bíó
Heyrð þessi Bond er nú bara ansi góður, miklu meiri töffari en þessir gömlu
þetta er eins og að labba inní líkhús þetta blogg……gerist ekki neitt:-)
Joojojo hven´r kemur svo Gilli til baka? Vantar nefnilega djamm félaga!